|
10.03.2009 12:41:04 / svalas
ég get ekki hætt að hugsa um þetta hús http://fastvest.is/soluskra/14454/er Akranes málið?
»
17.02.2009 20:58:31 / svalas
Ég trúi því ekki að svo sé komið að innbrotsþjófar svífist einskis lengur. Fyrir rúmu ári var brotist inn hjá okkur og þónokkuð vel rýmt hér inni. Í kjölfarið á því settu íbúar hér í blokkinni upp þjófarvarnarkerfi hjá sér og þar á meðal Marcin sem býr hér við hliðina á okkur. Ekki fór betur en svo að í dag var brotist inn hjá honum. Tölva, myndavél og skart ofl var tekið og allan tímann var þjófarvarnarkerfið á fullu, 2 íbúar í blokkinni voru heima, bílar á planinu en enginn sá neitt. Kl hálf níu á þriðjudegi er sumsé brotist inní blokkaríbúð í breiðholtinu sem er með þjófarvarnarkerfi - hvar endar þetta?
»
12.02.2009 21:26:32 / svalas
Í fréttunum í kvöld var viðtal við íbúa á Stöðvarfirði sem sagði að höfuðborgarbúar væru búnir að búa sér til kreppuna að vissu leiti sjálfir með vikulegum Kringluferðum. Ég verð að segja að þetta er mesta vitleysa sem ég hef nokkrun tímann heyrt. Fjandakornið að ég fengi sömu laun og ég hef ef ég byggi og ynni á Stöðvarfirði -garg, ég þoli ekki svona fullyrðingar. Mér finnst líka leiðinlegt að heyra að Reykjavík stressi mann svo upp - er það ekki soldið sjálfskapað? Hér eru helstu búðir opnar allan sólarhringinn og ekkert panik ef mjólkin er að klárast. Þá er bara skottast í tíuellefu og mjólkin keypt á útálandi verði sem er btw ripp off.
»
30.01.2009 08:21:50 / svalas
Bogmaður: Fátt er eins ömurlegt og að sitja fastur í úreltum skoðunum. Reyndu að herða upp hugann og ýta þessu frá þér Maður ætti kannski að taka þetta til sín
»
19.01.2009 08:16:31 / svalas
í tilefni þess að ég hef unnið hjá Já í 2 ár þá legg ég til að þið skoðið þetta: http://www.youtube.com/watch?v=LY6n8wmu9ZYAlgjör snilld  Svo ef þið viljið auglýsa á Já.is þá hafið þið bara samband við mig!
»
30.12.2008 19:06:16 / svalas
ég lenti í merkilegu atviki í matvörubúð áðan - keypti 9 hluti og þeir kostuðu nákvæmlega 3000! Hafið þið lent í þessu?
»
11.12.2008 16:52:41 / svalas
á maður að hafa áhyggjur af kalóríum í desember?
»
23.11.2008 20:13:27 / svalas
það stuðar mig alveg rosalega að kaupa kaffi á 400kall og þjónninn setur fingurnar ofan í bollan eða á brúnina - hvað veit ég um að hann/hún hafi klórað sér í rassinum innanásér?
»
10.11.2008 15:18:54 / svalas
»
28.10.2008 20:27:54 / svalas
Við giftum okkur á svo fallegum degi, 25. okt sl. Allt heppnaðist vel og það besta var að við sögðum bæði Já! Ég er ástfangin upp fyrir haus og ennþá með fiðrildið í maganum Þakkir til allra sem komu og nutu dagsins með okkur - þetta hefði ekki verið eins án ykkar 
»
20.10.2008 08:06:20 / svalas
ég er með fiðrildi í maganum - þetta er allt að bresta á
»
14.10.2008 09:31:15 / svalas
brúðkaupið er eftir 11 daga og ég er kattslök..... þetta gerist samt ekkert að sjálfu sér!
»
25.09.2008 15:56:35 / svalas
það góða við hálsbólgu er að röddin verður svo sexý....
»
09.09.2008 13:08:40 / svalas
....í hausinn á gæjanum sem datt í hug að segja í fréttunum í gær að heimsendir yrði næstkomandi miðvikudag?
»
28.08.2008 12:19:19 / svalas
gaman að horfa á handbolta en kjánalegt að spandera fúlgum í þyrlu-meðflug til rvk flugvöll. aðeins óverbord
»
Síður: 1 2
|